<body marginwidth="0" marginheight="0" link="blue" vlink="blue" alink="blue"><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3453967?origin\x3dhttp://coldbeerisgood.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>


There was a point to this, but it has escaped my mind

miércoles, febrero 6
 
Við erum flutt í Grafarholtið:

Kirkjustétt 17, íbúð 106

Drop by anytime, kaldur inn í ísskáp og nýbakað.

Sá einhvern tíman í einhverju tímariti upptalningu með götunum í lífi fólks. Ég fór því að pæla og hér kemur mín upptalning:

- Hamraborg, Kópavogi. Mín fyrsta eign. Ég og Dögg keyptum af Ömmu hennar. Hér steig Lena sýn fyrstu skref í lífinu.

- Drekagil, Akureyri. Kynntist Dögg hér. Many many many good times. Byrjaðai að leigja með Valda en fór svo að búa með Dögg.

- Holtsbúð, Garðabæ. Foreldrar mínir keyptu þetta hús back in the day. Örugglega sá staður sem ég hef lengst af kallað Heima en skemmst búið á.

- Jöklasel, Vatnajökul. Bjó í kofa upp við jökul rætur eitt sumar. Frábært sumar.

- Breiðavað 1, Egillstaðir. Upplifði sveitastörf í fyrsta skipti. Vann líka á flugvellinum og um borð í Lagafljótsorminum.

- Verbúð í Vestmannaeyjum. Mikil vinna og öðruvísi upplifun.

- Munkaþverárstræti og einhver gata þar sem ég leigði með Valda, Akureyri. Meira djamm og minni vinna.

- Calle Montera, Madrid. Bjó hér í 4 mánuði sumarið 1998.

- Calle Juan Sebastien Alcano, Malaga. Bjó hér í 3 mánuði sumarið 1996

- Heimavist MA, Akureyri. Fjögur frábær ár.

- Hæli, Hrísey. Jamm ég hef verið á Hæli. Bjó hér í tvö sumur er ég vann við fiskvinnslu.

- Larchmont Close, Elloughton (Hull). Bjó hér í tvö ár en fjölskylda mín eitthvað lengur.

- Allee des Ramieres, Hardelot. Fjögur ár bjó ég hér í þessum fallega strandbæ í norður Frakklandi.

- Beverley Road, Hessle og einhver önnur gata í Welton. Flutum frá Íslandi til Englands þegar ég var 8 ára

- Skipasund, Reykjavík. Spilaði fótbolta með Þrótti og gekk í Langholtsskóla í smá tíma.

- Dyngjuvegur, Reykjavík. Hér man ég fyrst eftir mér.

- Miðtún, Reykjavík. Var oft hér hjá Ömmu Fríðu og Afa Þórir. Langafi Hermann og Langamma Lauga bjuggu líka þarna. Góðar minnigar:)

- Álfheimar, Reykjavík. Afi Ásgeir bjó hér. Alltaf gaman að koma í heimsókn.

Þetta er svona það sem maður man eftir. En aðrar götur sem ég hef góðar minningar frá eru: Hjarðarhagi, Fornhagi, Spónsgerði, Austurbrún, Lerkilundur, Skaftárvellir, Stakkahlíð og Allee des Geneviers.

Og nú er maður kominn í Kirkjustétina í Grafarholtinu:)

Kannski maður fari að gera eitthvað meira með þetta blogg

Heilsaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa


 
Bloggið ekki alveg dautt
bara dáldið autt